top of page
  • Black Facebook Icon
  • Black Twitter Icon
  • Black Instagram Icon
sítrónur og náttmyrkur.JPG

Sítrónur og náttmyrkur er næm og seiðmögnuð

ljóðabók um umskipti og áttun. Hér brýst fram

einstök höfundarrödd  sem leiðir lesandann í

gegnum öldurót og norðanhríð, ljóssprengingar

og náttmyrkur, ugg, vá og kærleik. 

​

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er rithöfundur og sviðslistakona. Hún hefur samið og unnið að

leiksýningum, gjörningum og innsetningum

hérlendis og erlendis um árabil. Ritverk hennar

og ljóð hafa birst í ýmsum útgáfum og heyrst í útvarpi. 

 

Sítrónur og náttmyrkur er hennar fyrsta ljóðabók. 

​

Rödd

 

Í risi fyrir ofan kirkjugarð dreymir mig

sítrónu í lófa mínum

 

hún hafði setið föst í hálsinum alla tíð

án þess að ég vissi af henni

 

nýja röddin kemur mér á óvart

hún er vínrautt flauel

 

óþekkjanleg

 

í hvert sinn sem ég kyngi 

finn ég hita þar sem hún var áður
 

bottom of page