top of page
hérna eru fjöllin2.JPG

Hérna eru fjöllin blá er áhrifaríkur og umbreytandi

leiðangur um völundarhús samskipta, samfélags og drauma, um steinvölurnar sem okkur er kennt að elta, sársaukann og stefnumót við fögnuðinn

  

Melkorka Ólafsdóttir er tónlistarkona og

dagskrárstjóri tónlistar í Hörpu. Áður hefur hún sent frá sér ljóðaheftin Unglingsljóð (2000) og Ástarljóð (2004), auk þess að eiga sjötta hlut í ljóðabókum Svikaskálda. 

 

Hérna eru fjöllin blá er hennar fyrsta ljóðabók

í fullri lengd.

Stig

Marðar á iljum

tvístígum við í rökkrinu

 

eftir liggja

gamlir hugarórar

hlægilegir

 

gljáandi kvoða

úr sárum trjánna

umvafin árhringjum

 

einhver okkar sér hana

týruna á sléttunni

 

allan þann tíma

hafa opnar blómkrónurnar

vitnað um fegurðina

bottom of page